Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vinnur nú að nýju minnisblaði varðandi sóttvarnarreglur á landamærunum í ljósi nýs afbrigðis kórónuveirunnar, Ómíkron.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Rúv.
Þar segir að Þórólfur muni færa heilbrigðisráðherra minnisblaðið líklegast í dag, ekki er þó víst hvenær nýjar reglur muni taka í gildi.