Kjarvalsverk fjórfaldaðist í verði

Hið magnaða verk Fjölnismenn eftir Jóhannes S. Kjarval.
Hið magnaða verk Fjölnismenn eftir Jóhannes S. Kjarval.

Mikill áhugi er á verkum eftir listmálarann Jóhannes Kjarval um þessar mundir. Á síðasta uppboði ársins hjá Gallerí Fold í kvöld var hið magnaða olíuverk Fjölnismenn eftir Jóhannes S. Kjarval selt á 10,8 milljónir. Verkið var selt á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn fyrir tveimur árum fyrir 140 þúsund danskar krónur, jafnvirði 2,53 milljóna íslenskra króna. Hefur því virði verksins fjórfaldast á þessum tveimur árum. 

Á listaverkinu má sjá þá Brynjólf Pétursson, Jónas Hallgrímsson, Konráð Gíslason og Tómas Sæmundsson sem stóðu að tímaritinu Fjölni í Kaupmannahöfn. Fyrsta hefti tímaritsins kom út sumarið 1835. Málverkið var upphaflega í eigu Ragnars í Smára.

Fjöldi annarra verka seldust á yfirverði á uppboði Foldar í kvöld og má nefna lítið málverk eftir Georg Guðna sem seldist á 5,7 milljónir en verkið var metið á 3,2 milljónir og pappírsverk eftir Eggert Pétursson seldist á tvöföldu matsverði eða 1,2 milljónir. Þá fóru verk eftir naívistana Stórval og Ísleif Konráðsson einnig á tvöföldu matsverði, að því er segir í tilkynningu frá Fold.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert