Framlög til hjúkrunarheimila aukin um 2,2 milljarða

Hækkunin var í samræmi við niðurstöður vinnuhóps.
Hækkunin var í samræmi við niðurstöður vinnuhóps. mbl.is/Hari

Rekstrargrunnur hjúkrunarheimila verður styrktur varanlega um milljarð króna með fjárlögum næsta árs sem samþykkt voru á Alþingi í gær. Að auki er í fjárlögunum gert ráð fyrir 1,2 milljarða króna framlagi sem jafnframt er varanlegt, til að mæta auknum launakostnaði sem stafar af styttri vinnutíma vaktavinnufólks. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Er sú hækkun í samræmi við niðurstöður vinnuhóps heilbrigðisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Sambands sveitarfélaga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu sem fjallaði fyrr á þessu ári um aukna fjárþörf hjúkrunarheimila og hve miklu þyrfti að bæta inn í rekstrargrunninn til að tryggja rekstur.

Kleift að veita íbúum betri þjónustu

Haft er eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra að það sé mikilvægt skref að fjárlaganefnd og Alþingi hafði ákveðið að renna styrkari stoðum undir rekstur hjúkrunarheimilanna.

„Þessi hækkun á rekstrargrunninum um einn milljarð króna er í samræmi við niðurstöðu vinnuhópsins. Það er því óhætt að segja að breið samstaða sé um þessa auknu fjármuni sem tvímælalaust skapa hjúkrunarheimilunum betri stöðu og gera þeim betur kleift að veita íbúum sínum góða þjónustu,“ segir heilbrigðisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert