Skúli Eggert Þórðarson skipaður ráðuneytisstjóri

Skúli Eggert er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti …
Skúli Eggert er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti ríkisendurskoðanda frá árinu 2018. mbl.is/​Hari

Skúli Eggert Þórðarson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri nýs menningar- og viðskiptaráðuneytis og mun hann hefja störf þann 1. febrúar. Er það Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra sem skipar í embættið.

Skúli Eggert er lögfræðingur að mennt og hefur gegnt embætti ríkisendurskoðanda frá árinu 2018. Hann var áður ríkisskattstjóri frá 2006 og fram að því skattrannsóknarstjóri frá árinu 1993.

Tilkynnt er um þetta á vefsíðu stjórnarráðsins en þar segir að ákvörðun um flutning Skúla Eggerts í embætti ráðuneytisstjóra sé tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild til flutnings embættismanna ríkisins milli starfa.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lagt niður í dag

Samkvæmt tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sem samþykkt var á Alþingi í dag,  verður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið lagt niður nú um mánaðarmótin.

Verkefni þess munu færast að mestu í tvö ný ráðuneyti; menningar- og viðskiptaráðuneyti þar sem mætast málaflokkar menningar, viðskipta og ferðaþjónustu og matvælaráðuneytið með málaflokkum sjávarútvegs, fiskeldis, landbúnaðar, skógræktar og landgræðslu.

Þrír málaflokkar færast til annarra ráðuneyta, en orkumál verða í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og iðnaðar- og nýsköpunarmál í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert