Flugvélin fundin

Frá leit björgunarsveita að flugvélinni við Þingvallavatn í dag.
Frá leit björgunarsveita að flugvélinni við Þingvallavatn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Flugvélin sem saknað hefur verið frá því um hádegisbil á fimmtudag er fundin. Þetta kemur fram á Facebooksíðu Landhelgisgæslunnar á öðrum tímanum í nótt. Vélin fannst með kafbát í sunnanverðu Þingvallavatni á ellefta tímanum í kvöld.

Kafbátur frá fyrirtækinu Teledyne Gavia í Ölfusvatnsvík, fann flugvélina. Rúmlega þúsund viðbragðsaðilar hafa tekið þátt í leitinni, þar á meðal á níunda hundrað björgunarsveitarmenn frá Landsbjörg, þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, lögregla, séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sérsveit ríkislögreglustjóra, starfsmenn Isavia, einkaaðilar auk fjölmargra annarra, að því er segir á vef Gæslunnar.

„Landhelgisgæslan vill þakka öllum þeim sem komið hafa að þessari umfangsmiklu leit fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf við krefjandi aðstæður. Rannsókn málsins og næstu skref eru í höndum lögreglunnar á Suðurlandi. Viðbragðsaðilar sem unnið hafa unnið að leitinni eru komnir í hvíld og í hádeginu er fyrirhugaður stöðufundur þar sem farið verður yfir næstu skref. Lögreglan á Suðurlandi getur veitt frekari upplýsingar að þeim fundi loknum," segir ennfremur á vef Landhelgisgæslunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert