Selenskí ávarpar Alþingi og íslensku þjóðina

Selenskí ávarpar Alþingi á morgun.
Selenskí ávarpar Alþingi á morgun. Samsett mynd

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, mun flytja ávarp á Alþingi á morgun, föstudag, í gegnum fjarfundarbúnað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþingi.

Þetta er í fyrsta sinn sem erlendum einstaklingi er boðið að ávarpa Alþingi. Hægt verður að fylgjast með ávarpinu kl. 14 í beinni útsendingu í sjónvarpi, á vef Alþingis og öðrum vefmiðlum, þar á meðal mbl.is. 

„Einstakur viðburður“

„Ávarp Selenskís er einstakur viðburður því þetta verður í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, mun stýra þessari sérstöku athöfn í sal Alþingis og talar í upphafi athafnarinnar. Þá mælir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Síðan tekur Selenskí til máls. Að loknu ávarpi Selenskís ávarpar forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, forseta Úkraínu,“ segir í tilkynningunni.

„Ísland hefur frá upphafi fordæmt tilefnislausa innrás Rússlands í Úkraínu og lýst yfir eindregnum stuðningi við úkraínsku þjóðina og þarlend stjórnvöld. Ísland tekur fullan þátt í alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi, styður við mannúðaraðgerðir Sameinuðu þjóðanna og annarra stofnana og tekur á móti fólki á flótta frá Úkraínu. Þá hefur Ísland haft milligöngu um loftflutninga búnaðar, þar á meðal hergagna, í tengslum við varnir Úkraínu. Ísland mun áfram leita leiða til þess að styðja við Úkraínu með öllum þeim ráðum sem stjórnvöldum eru tiltæk og í samræmi við þær þarfir sem uppi eru í Úkraínu,“ segir þar einnig.

Frá ávarpi Selenskís á norska þinginu 30. mars.
Frá ávarpi Selenskís á norska þinginu 30. mars. AFP

Hefur ávarpað fjölda þjóðþinga

Athöfnin í þingsal mun að mestu leyti fara fram á ensku. Ávarp Selenskís verður túlkað yfir á íslensku í rauntíma en að öðru leyti mun fundurinn fara fram á ensku.

Forsetinn hefur ávarpað fjölda þjóðþinga frá því að innrás Rússlands í Úkraínu hófst 24. febrúar síðastliðinn. Þar hefur hann óskað eftir auknum stuðningi við Úkraínu vegna innrásarinnar. Meðal annars hefur hann kallað eftir hertum refsiaðgerðum í garð Rússa. 

Selenskí hefur ávarpað þing hinna Norðurlandanna, þar á meðal norska þingið. Einnig hefur hann ávarpað breska þingið og Bandaríkjaþing á undanförnum mánuðum, auk þess sem hann hefur ávarpað öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og Evrópuþingið.

Einnig ávarpaði hann áhorfendur Grammy-verðlaunahátíðarinnar fyrir um mánuði síðan. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert