Íslandsbankaskýrslan tilbúin í lok vikunnar

Skýrslunnar hefur verið beðið í töluverðan tíma.
Skýrslunnar hefur verið beðið í töluverðan tíma. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkisendurskoðun mun ljúka við skýrslu um söluna á hlut ríkisins Íslandsbanka í þessari viku og afhenda hana forseta Alþingis í lok vikunnar. Gert er ráð fyrir því að skýrslan verði gerð opinber mánudaginn 14. nóvember.

Þetta staðfestir Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, í samtali við mbl.is

„Já algjörlega, þetta er að klárast hjá okkur,“ segir Guðmundur.

„Ég geri ráð fyrir því sem stendur að kynning af okkar hálfu fari ekki fram fyrr en á mánudaginn og skýrslan verði þá sett í loftið á vefnum hjá okkur samdægurs, segir Guðmundur jafnframt.

Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi.
Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi.

Skýrslan verður gerð opinber um leið og Ríkisendurskoðun hefur gefist tækifæri á því að kynna innihald skýrslunnar fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

„Ég á von á því að það verði á mánudagseftirmiðdag.“

Ítrekað frestað

Skýrsl­unn­ar hef­ur verið beðið um nokk­ur skeið. Upp­haf­leg áætl­un miðaðist við að skýrsl­an kæmi út fyr­ir lok júní. Sú áætl­un miðaðist við að öll gögn lægju fyr­ir í mál­inu, en svo reynd­ist ekki vera. Var þá talað um að skýrslunni yrði líklega skilað fyrir verslunarmannahelgi.

Um miðjan ágúst var gert ráð fyrir því að skýrslan yrði tilbúin fyrir ágústlok, en frekari tafir urðu og um miðjan september var miðað við skýrslan kæmi út fyrir lok mánaðarins. Enn urðu tafir en til stóð að lokið yrði við gerð skýrslunnar fyrir októberlok, sem gekk svo ekki eftir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert