Skjálfti af stærð 3,4 í Mýrdalsjökli

Óvenjumikil skjálftavirkni hefur verið í Mýrdalsjökli.
Óvenjumikil skjálftavirkni hefur verið í Mýrdalsjökli. mbl.is/Rax

Mælar Veðurstofu Íslands greindu jarðskjálfta af stærðinni 3,4 í Mýrdalsjökli laust fyrir hádegi en í dag hafa þrír skjálfar mælst yfir þremur að stærð í jöklinum.

Alls hafa 13 skjálftar mælst frá því á miðnætti og eru þeir allir staðsettir innan Kötlu öskjunnar, að því er fram kemur í tilkynningu Veðurstofunnar. Þar segir einnig að jarðskjálftar af þessari stærðargráðu séu ekki óalgengir á þessum slóðum og að enginn órói hafi mælst í kjölfar skjálftanna.

Hlýtt í nóvember

Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði í samtali við mbl.is fyrr í dag að óvenjumikil skjálftavirkni hefði verið í Mýrdalsjökli síðustu daga. Það gæti þó tengst því að mun hlýrra sé búið að vera í nóvember en áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert