Þrjár vélar lentu á varaflugvöllum vegna veðurs

Vélar Play þurftu að lenda á varaflugvöllum vegna veðurs.
Vélar Play þurftu að lenda á varaflugvöllum vegna veðurs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrjár flugvélar Play sem áttu að lenda á Keflavíkurflugvelli þurftu að lenda á varaflugvöllum í dag vegna veðurs, tvær á Egilsstöðum og ein á Akureyri. Þetta staðfestir Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play.

„Nú er verið að setja eldsneyti á vélarnar og beðið eftir færi til að lenda í Keflavík,“ segir í skriflegu svari frá Nadine. 

Flugferðum aflýst í kvöld og nótt

Hvasst er í Keflavík þessa stundina og hefur að minnsta kosti fimm flugferðum verið aflýst í kvöld og nótt, hjá Icelandair, Play og Vueling.

Um er að ræða fjórar vélar sem koma frá Barcelona, Baltimore í Washingtone, Boston og Las Palmas annars vegar og hins vegar eina vél sem átti að leggja af stað til Barcelona í fyrramálið, að því er fram kemur á vef Isavia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert