Fer fram á hámarksrefsingu í stóra kókaínmálinu

Anna Barbara Andradóttir saksóknari.
Anna Barbara Andradóttir saksóknari. mbl.is/Hákon

Héraðssaksóknari leggur til að sakborningarnir fjórir í stóra kókaínmálinu hljóti hámarksrefsingu í héraðsdómi, auk þess að þeir greiði allan sakarkostnaðar.

Anna Barbara Andradóttir saksóknari rakti málið í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hún sagði það ótrúverðugt að sakborningar vissu ekki um umfang sendingarinnar líkt og þeir báru allir fyrir sig í vitnaleiðslum fyrir dómi. Þá sagði hún málið vera þaulskipulagt og mikið hafi verið lagt í að koma fíkniefnunum hingað.

Hún sagði það vera dómsins að meta refsingu en vísaði til fyrri dóma, þar á meðal 12 ára fangelsisdóma í saltdreifaramálinu.

Í því máli voru þrír menn fundn­ir sek­ir fyr­ir að hafa staðið að inn­flutn­ingi á salt­dreifara hingað til lands með Nor­rænu frá Hollandi. Í hon­um voru fald­ir 53 lítr­ar af am­feta­mín­vökva. Í sam­vinnu við óþekkt­an ís­lensk­an aðila fjar­lægðu þeir am­feta­mín­vökv­ann úr salt­dreif­ar­an­um og fram­leiddu allt að 117,5 kg af am­feta­míni í sölu og dreif­ing­ar­skyni.

Málið rakið

Páll Jóns­son, Daði Björns­son, Jó­hann­es Páll Durr og Birg­ir Hall­dórs­son fjór­ir eru all­ir ákærðir fyr­ir skipu­lagða brot­a­starf­semi, til­raun til stór­fellds fíkni­efna­laga­brots og hafa haft um­tals­verðar óút­skýrðar tekj­ur sem talið er að þeir hafi aflað sem ávinn­ings af refsi­verðum brot­um. Eru upp­hæðirn­ar frá 13 og upp í 17 millj­ón­ir á hvern ein­stak­ling, sam­tals 63 millj­ón­ir.

Birg­ir Hall­dórs­son og Jó­hann­es Páll Durr.
Birg­ir Hall­dórs­son og Jó­hann­es Páll Durr. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Upp­haf máls­ins má rekja til þess er lög­regla fékk upp­lýs­ing­ar um það að hóp­ur manna væri að flytja inn mikið magn af kókaíni hingað til lands. Á rann­sókn­ar­tíma­bil­inu fylgd­ist lög­regla með ákærða og meðákærðu auk þess sem lög­regla beitti rann­sóknar­úr­ræðum með heim­ild dóm­stóla.

Í ákæru héraðssak­sókn­ara seg­ir að sak­born­ing­arn­ir ásamt óþekkt­um aðila, stóðu sam­an að inn­flutn­ingi á 99,25 kíló­um (með 81%-90% styrk­leika) af kókaíni hingað til lands frá Bras­il­íu með viðkomu í Rotter­dam í Hollandi. 

Fíkni­efn­in voru fal­in í sjö trjá­drumb­um sem komið var fyr­ir í gámi en efn­in voru hald­lögð af hol­lensk­um yf­ir­völd­um þann 30. júní árið 2022. Gervi­efn­um var síðan komið fyr­ir í trjá­drumb­un­um og kom gám­ur­inn hingað til lands aðfaranótt 25. júlí og var af­greidd­ur af tollsvæði þann 2. ág­úst. 

4. ág­úst voru trjá­drumbarn­ir síðan flutt­ir að Gjá­hellu í Hafnar­f­irði, þar sem hin ætluðu fíkni­efni voru fjar­lægð úr trjá­drumb­un­um af Daða. 

Daði Björns­son og Páll Jónsson.
Daði Björns­son og Páll Jónsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hann pakkaði þeim þar niður og flutti til ótil­greinds aðila til að hægt yrði að koma efn­un­um í sölu og dreif­ingu. 

Lög­regla lagði hins veg­ar hald á hluta af ætluðum fíkni­efn­un­um í bif­reið Daða sem var lagt við Vefara­stræti í Mos­fells­bæ. Menn­irn­ir fjór­ir voru hand­tekn­ir sama kvöld. 

Tóku meðvitaða ákvörðun um þáttöku

Anna Barbara nefndi í málflutningi sínum að fagmennska, skipulagning og peningaflæði einkenni skipulagða brotastarfsemi, og þar af leiðandi þetta mál.

Hún sagði alla aðila hafa verið meðvitaða um að fleiri en sakborningarnir fjórir tóku þátt í innflutningunum, en það drægi þó ekki úr þeirra hlut.

Hún sagði að ekki hafi verið um tilviljanakenndan félagskap að ræða og tilgangurinn hafi einfaldlega verið að græða peninga.

„Öll hlutverk skipta máli til þess að sjá til þess að málið gangi upp,“ sagði Anna.

Hún sagði að með því að fjölga aðilum sem koma að sendingunni minnkar áhættan á að allir verða handteknir. „Um þetta snýst skipulögð brotastarfsemi“.

Vissu umfangið

Anna fór yfir hlutdeild allra sakborninganna og vísaði meðal annars til þess að þeir höfðu allir greint frá því í skýrslutökum lögreglu að þeir vissu að allavega ætti að flytja inn meira en 50 kíló.

Umfangið og skipulagning sendingarinnar bera þess merki að sendingin ætti að vera stór. Þá greindur þeir frá því í skýrslutökum lögreglu að þeir hafi ættu að fá greitt meira en tíu milljónir fyrir verkefnið, sem þeir drógu síðan til baka.

Ljóst sé þó að þeir fengju ekki greitt svo ríkulega fyrir minni sendingu.

„Magnið með öllu fordæmalaust“ sagði hún og bætti við að brotin væru þaulskipulögð.

Anna sagði að sakborningarnir hafi reynt að slá ryki í augu dómara og ákæruvaldsins með því að játa brotin að hluta til. Þær játningar leiði ekki til þess að refsing verði milduð né enginn eða vægur sakaferill sakborninganna.

Bú­ast má við dóms­upp­kvaðningu eftir fjórar vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert