Rökrétt ákvörðun peningastefnunefndar

Vonast Samtök iðnaðarins til þess að ákvörðunin marki endinn á …
Vonast Samtök iðnaðarins til þess að ákvörðunin marki endinn á því hraða vaxtahækkunarferli sem staðið hefur yfir að hálfu bankans frá því um mitt ár 2021. mbl.is/Árni Sæberg

Samtök iðnaðarins (SI) telja ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans rökrétta, um að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í stað þess að hækka þá eins og spár greiningaraðila gerðu ráð fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SI.

Svigrúm til lækkunar þegar kemur fram á veturinn

„Verkefnið nú er að ná niður verðbólgu og stýrivöxtum. Líklegt má telja að svigrúm verði til lækkunar stýrivaxta þegar kemur fram á veturinn og verðbólgan er farin að hjaðna frekar en nú er.

Samtök iðnaðarins benda á að seðlabankar erlendis hafa í auknum mæli sent skilaboð um að vextir hafi náð hámarki og það styttist í lækkun þeirra. Mikilvægt er að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni senda slík skilaboð samhliða næstu vaxtaákvörðun,“ segir í tilkynningunni.

Samtökin telja áhrif mikilla hækkana stýrivaxta undanfarin misseri þegar hafa komið fram auk þess sem enn frekari áhrif muni koma fram á næstu mánuðum enda taki nokkurn tíma fyrir vaxtabreytingar að hafa áhrif.

Vonast samtökin til þess að ákvörðunin marki endinn á því hraða vaxtahækkunarferli sem staðið hefur yfir að hálfu bankans frá því um mitt ár 2021 þegar peningastefnunefndin hefur hækkað vexti bankans úr 0,75% í 9,25%.

Boltinn hjá stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins

Bent er á að verðbólga sé að hjaðna og að það hægist á hagvexti.

„Verðbólgan hefur farið úr 10,2% niður í 8%  síðan í febrúar á þessu ári. Væntingar eru um að það dragi talsvert meira úr verðbólgu á næstunni. Það dregur úr vexti hagkerfisins og sjást merki þess víða og ekki síst í iðnaðinum. Samhliða hægari hagvexti er viðbúið að það slakni á spennu á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er lágt og skortur á vinnuafli víða. Viðbúið er að atvinnuleysi komi til með að aukast á næstunni.“

Þá segir í tilkynningunni að slaknað hafi á spennu á íbúðamarkaði og að húsnæðisverð leggi mun minna til verðbólgunnar nú en áður. Dregið hafi úr veltu á íbúðamarkaði og farið sé að gæta birgðasöfnunar á síðustu byggingarstigum. Tólf mánaða hækkun húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 2,7% samanborið við 25% fyrir ári síðan.

Það sé rétt ákvörðun hjá peningastefnunefnd Seðlabankans að gefa háum stýrivöxtum tíma til að hafa áhrif á verðbólguna og öðrum aðilum sem koma að hagstjórninni svigrúm til að leggja sitt af mörkum. 

„Boltinn er nú hjá stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins. Að mati Samtaka iðnaðarins er mikilvægt að kjarasamningar í vetur renni stoðum undir stöðugleika og verðbólgu í takti við markmið Seðlabankans. Boltinn er einnig hjá ríkisstjórninni þar sem mikilvægt er að hún beiti aðhaldi og nýti ríkisfjármálin til að styrkja framboðshlið hagkerfisins og efli framleiðni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert