Á annan tug smáskjálfta við Hengil

Lítil smáskjálftahrina mældist í kvöld við Hengil.
Lítil smáskjálftahrina mældist í kvöld við Hengil. Kort/Map.is

Á annan tug smáskjálfta hafa mælst norður af Hengli í kvöld.

Stærsti skjálftinn var 1,8 að stærð samkvæmt óyfirförnum mælingum Veðurstofu Íslands. Reið hann yfir klukkan 23.12.

Vika er liðin frá því að fjöldi smáskjálfta mældist í grennd við Hellisheiðarvirkjun.

Þá eru um þrjár vikur liðnar frá því að stærri hrina reið yfir svæðið.

Svæðið stækkar

Fjallað var ít­ar­lega í nóv­em­ber um breyt­ing­ar á jarðhita aðeins sunnar, á há­hita­svæðinu í Hvera­döl­um við Hell­is­heiði.

Greini­legt þykir að há­hita­svæðið sé að stækka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert