Ingvar og Guðný fara yfir stöðu mála

Ingvar Eyfjörð og Guðný Birna verða álitsgjafar á forsetafundi Morgunblaðsins …
Ingvar Eyfjörð og Guðný Birna verða álitsgjafar á forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is í kvöld. Samsett mynd

Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs ehf., og Guðný Birna Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, verða álitsgjafar á opnum forsetafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Reykjanesbæ í kvöld. 

Forsetafundurinn er haldinn með Höllu Tómasdóttur á Park Inn by Radisson klukkan 19.30 og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

Ingvar og Guðný munu ræða könnun Prósents sem kom út á dögunum, fara yfir stöðuna í forsetakosningunum og spá í spilin.

Halla á flugi í skoðanakönnunum

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson munu stýra fundinum og þegar álitsgjafarnir hafa farið yfir málin verður Höllu Tómasdóttur boðið upp á svið. 

Andrés og Stefán munu spyrja Höllu um forsetaembættið og svo verður opnað fyrir spurningar úr sal frá fundargestum. 

Halla hef­ur verið á flugi í skoðana­könn­un­um að und­an­förnu og mun­ar núna inn­an við 6 pró­sentu­stig­um á henni og Katrínu Jak­obs­dótt­ur, sem er með mesta fylgið, í nýj­ustu skoðana­könn­un Pró­sents.

Fylgi fimm efstu frambjóðenda nú og hreyfing fylgisins undanfarnar vikur.
Fylgi fimm efstu frambjóðenda nú og hreyfing fylgisins undanfarnar vikur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert