Í apríl síðastliðnum voru 8.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum Hagstofunnar.
Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 3,6%, hlutfall starfandi var 79,7% og atvinnuþátttaka 82,7%.
Atvinnuleysið dróst saman um 0,9 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi jókst um tvö prósentustig og atvinnuþátttaka jókst einnig eða um 1,4 stig.