Framboðsfrestur er ekki liðinn þótt utankjörfundaratkvæðagreiðsla sé hafin

Dómsmálaráðuneytið vekur athygli á því að framboðsfrestur til Alþingis er til 12 á hádegi 10. september. Fyrir þann tíma liggur ekki fyrir hvaða stjórnmálasamtök bjóða fram lista í komandi kosningum til Alþingis.

Vegna þessa liggja ekki frammi upplýsingar um framboðslista og listabókstafi, á þeim stöðum þar sem kosning utan kjörfundar fer fram, að því er segir á vef ráðuneytisins. 

Kjósendur sem greiða atkvæði utan kjörfundar skulu rita listabókstaf þess flokks sem þeir kjósa með eigin hendi. Stimplar með listabókstöfum verða til reiðu þegar fyrir liggur hverjir eru í framboði. 

Lögum samkvæmt ber dómsmálaráðuneytinu að halda skrá um listabókstafi stjórnmálasamtaka sem buðu fram við síðustu alþingiskosningar og birta hana. Hefur það verið gert í Stjórnartíðindum. Jafnframt ber að birta viðbætur við auglýsinguna þegar nýjum listabókstöfum er úthlutað og er þær viðbætur að finna í auglýsingunni, segir ennfremur í tilkynningunni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert