Sigursöngvar á kosningavöku Framsóknar

Mikil stemning á kosningavöku Framsóknar.
Mikil stemning á kosningavöku Framsóknar. mbl.is/Hólmfríður

Rífandi stemning er á kosningavöku Framsóknar en flokkurinn heldur áfram að bæta við sig fylgi og samkvæmt nýjustu tölum er flokkurinn með þingmenn í öllum kjördæmum.

Herra Hnetusmjör og Egill Spegill héldu uppi stemningunni.
Herra Hnetusmjör og Egill Spegill héldu uppi stemningunni. mbl.is/Hólmfríður

Stuðningsmenn flokksins syngja hátt sigursöngva og öskra „we are going up“ og „Framsókn“ til skiptis. Hafa menn ýmist mætt í jakkafötum og knattspyrnutreyjum til að halda upp á kosningadaginn.

„Reykjavík er okkar“ og „We are the Champions“ hafa hljómað hátt í hátölurunum og eru gestir almennt nokkuð vongóðir um niðurstöðu alþingiskosninganna.

mbl.is/Hólmfríður
Gestir mættu ýmist í jakkafötum eða fótboltatreyjum. Einn mætti í …
Gestir mættu ýmist í jakkafötum eða fótboltatreyjum. Einn mætti í treyju Víkinga, nýkrýndum Íslandsmeistara. mbl.is/Hólmfríður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert