Tvö gerólík hvel Plútós

Tvö gerólík hvel Plútós.
Tvö gerólík hvel Plútós. Af Stjörnufræðivefnum

Hvel dvergreikistjörnunnar Plútós virðast gerólík á nýjum litmyndum sem geimfarið New Horizons hefur tekið af henni. Á öðru hvelinu eru breiðir blettir sem raðast upp með jöfnu millibili eftir miðbaugnum. Uppruni blettanna er á huldu en New Horizons gæti varpað frekari ljósi á hann þegar það flýgur fram hjá eftir tvær vikur.

Blettirnir eru að minnsta kosti fjórir og eru tæplega 500 kílómetra breiðir. Hver þeirra er rúmlega eitt og hálf Ísland að flatarmáli að því er kemur fram í frétt á Stjörnufræðivefnum. Önnur ráðgáta er lita- og útlitsmunurinn á Plútó og stærsta tungli hans, Karon, sem er mun dekkra og grárra og skartar forvitnilegri dökkri pólhettu.

Litmyndirnar voru settar saman úr svarthvítum myndum sem LORRI-myndavél New Horizons tók af Plútó og Karon og litagögnum í lægri upplausn frá Ralph-mælitækinu. Plútó og Karon sjást í því sem næst náttúrulegum lit, þ.e. eins og þau myndu birtast mannsauganu.

Báðar fyrrnefndar myndavélar eru byrjaðar að leita að hugsanlegum skýjum í lofthjúpi Plútós. Ský verða notuð til að mæla vindhraða og vindáttir í lofthjúpi Plútós.

New Horizons flýgur fram hjá Plútó og tunglum hans 14. júlí og þá verður vonandi hægt að varpa frekari ljósi á þessa leyndardóma og fleiri sem kerfið kann að geyma.

Fréttin á Stjörnufræðivefnum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert