Íhugar að loka X í Evrópu

Elon Musk keypti samfélagsmiðilinn Twitter fyrir ári síðan.
Elon Musk keypti samfélagsmiðilinn Twitter fyrir ári síðan. AFP/Alain Jocard

Elon Musk íhugar að loka samfélagsmiðlinum X í Evrópu til þess að forðast að fylgja eftir reglugerðum Evrópusambandsins (ESB). Um 9% mánaðarlegra notenda X eru í Evrópu. 

Business Insider greinir frá því að Musk sé fúll yfir því að þurfa framfylgja reglugerð ESB sem tók í gildi í ágúst og tekur á dreifingu falsfrétta. 

Heimildarmaður Buisness Insider greinir frá því að Musk íhugi að gera X-appið óaðgengilegt í Evrópu eða að loka fyrir notendur samfélagsmiðilsins innan ESB. Síðari leiðin er svipuð og sú sem Meta kaus fyrir appið Threads. 

Í síðustu viku var greint frá því að ESB saki X um að dreifa upp­lýs­inga­föls­un í tengsl­um við átök­in milli Ísra­el og Ham­as.

Málið er nú til rannsóknar hjá ESB og gæti rannsóknin leitt af sér umfangsmiklar sektir á hendur X. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert