Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur fjallar um vindmyllur í pistli á
blog.is og segir þar: „Danmörk er langmesta vindmylluland Norðurlandanna, og þar er raforkuverðið langhæst.“ Hann segir að vinnslukostnaður rafmagns sé hár með vindmyllum en þó sé aflið frá vindmyllunum „annars flokks vegna óvissunnar, sem gætir um afhendingu þess. Viðskiptavinur getur ekki reitt sig á þetta afl, og þess vegna hefur vindmylluaflið afar lítið gildi hjá viðskiptavini, sem verður fyrir tilfinnanlegu tjóni, ef hann fær ekki umsamið afl.“
Meira