Kjúklingabringur fylltar með döðlupestó

Algjört lostæti.
Algjört lostæti. mbl.is/TM

Ljúffengur kjúklingur sem svíkur engann. Gott er að bera hann fram með sætkartöflum og salati eða soðnu taglatelle. Pestóið er alger snilld hvort sem er í matseld, á brauð eða bakað eggaldin. Svo passar rétturinn alveg sérstaklega vel í veislur. Uppskrift af því er HÉR. 

Kjúklingabringur fylltar með döðlupestó 
fyrir 4

  • 4 kjúklinga bringur 
  • ½ skammtur af döðlupestó uppskriftinni sem gefin er upp hér að ofan 
  • Salt 
  • pipar 
  • 10 Picollo tómatar eða aðrir smátómatar 
  • 1 msk ólífuolía 
  • 10 lauf - fersk basilíka

Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 190 gráður.
  2. Pennslið eldfast mót með olíu og leggið bringurnar í það. 
  3. Saltið þær og piprið.
  4. Skerið rauf í bringuna miðja og fyllið hana með döðlupestó og ekki vera nísk! 
  5. Stráið tómötum yfir bringurnar í fatinu og saxið 10 basilíkulauf og dreifið yfir. 
  6. Bakið kjúklinginn í 40 mínútur. Athugið að baksturslengd fer eftir stærð og þykkt. 
Virkilega snjall og stórsniðugur í veislur.
Virkilega snjall og stórsniðugur í veislur. mbl.is/TM
Tilbúinn í ofninn.
Tilbúinn í ofninn. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert