Gulrótarkaka með rjómaostakremi og saltkaramellu

mbl.is/Berglind Guðmunds

Hér gefur að líta geggjaða gulrótarköku með kremi sem klikkar ekki. Það er nefnilega þannig að krem sem innihalda rjómaost eiga það til að vera betri en önnur krem...

Það er Berglind Guðmunds á Gulur, rauður, grænn og salt sem á heiðurinn að þessari snilld en síðuna hennar er hægt að nálgast HÉR.

Gulrótarkaka með rjómaostakremi og saltkaramellu

  • 200 g gulrætur
  • 1 epli
  • 3 egg
  • 1 1/2 dl púðursykur
  • 1 1/2 dl sykur
  • 3 dl hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk vanillusykur
  • 2 tsk kanill
  • 1/2 tsk kardimommukrydd
  • 1/2 tsk engiferkrydd
  • 1/4 tsk salt
  • 1 1/2 dl olía (t.d. sólkjarna)
  • 50 g pekanhnetur

Rjómaostakrem

  • 200 g smjör
  • 300 g flórsykur
  • 1 tsk vanilluduft
  • 150 g Philadelphia rjómaostur
  • 1/2 – 1 tsk sítrónusafi

Saltkaramellusósa

  • 2 dl rjómi
  • 2 dl flórsykur
  • 3/4 dl síróp
  • 40 g smjör
  • 1 tsk salt
  • sjávarsalt

Aðferð:

  1. Þeytið egg, púðursykur og sykur saman þar til blandan er orðin létt og ljós.
  2. Rífið gulrætur og epli gróflega niður og saxið hneturnar. Setjið saman við deigið ásamt olíu og hrærið vel saman.
  3. Setjið smjörpappír í tvö 24cm form og skiptið deiginu á milli. Bakið í 185°c heitum ofni í 20-25 mínútur. Takið úr ofni og kælið lítillega.
  4. Gerið nú kremið og byrjið á að hræra smjör, flórsykur og vanilluduft vel saman. Bætið rjómaosti saman við og hrærið áfram. Smakkið til með sítrónusafa.
  5. Smyrjið botnana með kreminu og leggið saman. Setjið kökuna í kæli í að minnsta kosti klukkustund.
  6. Gerið saltkaramelluna og hitið rjóma, flórsykur og síróp í potti og hrærið stöðugt. Látið sjóða í 2-3 mínútur. Skerið smjörið í litla teninga og bætið saman við. Smakkið til með salti. Kælið og berið fram með gulrótarkökunni.
mbl.is/Berglind Guðmunds
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert