Ómótstæðilegir hnetusmjörsbitar með pretzel

Þú þarft ekkert annað í líf þitt núna en þessa …
Þú þarft ekkert annað í líf þitt núna en þessa hnetusmjörsbita. mbl.is/Tasteofhome

Enn ein sykursæta uppskriftin sem negld er á „to-do“-listann um helgina. Hér þarf ekkert að baka í ofni, bara að henda í skál og inn í kæli. Getum næstum lofað því að allir á heimilinu verða glaðir, líka hundurinn ef hann mætti smakka.

Ómótstæðilegir hnetusmjörsbitar með pretzel

  • 1 pakki pretzels
  • 1 - 1½ bolli smjör, bráðið
  • 1 - 1½ bolli hnetusmjör
  • 3 bollar flórsykur
  • 2 bollar súkkulaðidropar
  • 1 msk. palmínfeiti

Aðferð:

  1. Takið fram bökunarform og klæðið með bökunarpappír. Setjið til hliðar um 1 - 1½ bolla af pretzel til að nota á eftir. Setjið restina af pretzelinu í matvinnsluvél og hakkið þar til alveg fínt. Blandið vel saman, smjöri, hnetusmjöri, flórsykri og pretzel-mulningnum. Komið blöndunni fyrir í bökunarforminu.
  2. Bræðið súkkulaðið og palmínfeitina saman í örbylgjuofni, hrærið í þar til mjúkt. Dreifið yfir hnetusmjörsbotninn. Brjótið pretzel niður og stráið yfir súkkulaðið (má ýta léttilega á svo það þrýstist niður í súkkulaðið). Setjið í kæli í minnsta kosti 1 klukkustund.
  3. Lyftið bökunarpappirnum úr forminu og skerið í litla bita.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert