Skuggalega góður ofnbakaður plokkfiskur

mbl.is/Svava Gunnars

Hér gefur að líta skuggalega skothelda uppskrift að plokkfiski sem er að margra mati besti fiskur í alheiminum. Plokkfiskur er bæði góður og svo er það nú þannig að börnin elska hann meira en allt. Og með nýbökuðu rúgbrauði... 

Það er Svava Gunnars á Ljúfmeti & lekkerheit sem á þessa uppskrift. 

Plokkfiskur

  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 2-3 msk smjör
  • ½-1 tsk karrí
  • 4-5 msk hveiti
  • 3½ – 4 dl mjólk
  • ½ tsk svartur pipar
  • ½ tsk salt
  • ½ tsk fiskikraftur
  • 600 g soðin ýsa eða þorskur
  • 300 g soðnar kartöflur í bitum
  • 1-2 tsk dijon sinnep
  • 120 g rifinn ostur

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°. Saxið lauk og hvítlauk og steikið upp úr smjöri við miðlungsháan hita þar til laukurinn verður glær. Setjið karrý saman við og steikið í ½ mínútu til viðbótar. Stráið hveiti yfir og hrærið vel saman. Bætið mjólkinni saman við í smáum skömmtum og hrærið stöðugt á meðan. Setjið fiskikraft út í ásamt pipar og salti. Látið sjóða við vægan hita um stund og hrærið í á meðan.  Skerið fiskinn og kartöflurnar í bita og bætið þeim út í með sleif.

Setjið blönduna í eldfast mót. Hrærið sinnepi saman við rifinn ost og stráið yfir plokkfiskinn. Bakið í 10 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað. Berið fram með rúgbrauði.

mbl.is/Svava Gunnars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert