KitchenAid í sérstakri afmælisútgáfu

Ein flottasta matvinnsluvél allra tíma mun fagna 100 ára afmæli á komandi ári og þá í sérstakri afmælisútgáfu. KitchenAid hefur fylgt mörgum heimilum í gegnum tíðina og skilað ótal kræsingum á borðið.

Vélin er klassísk í útliti og færir nostalgíuna heim í hús – í retró bláum lit sem kallast Misty Blue. Skálin sem fylgir vélinni er úr títanum-keramiki sem þolir að fara inn í ofn, örbylgju og frysti. Þessi tryllt-flotta hrærivél mun aldrei verða geymd inni í skáp og verður fáanleg í takmörkuðu upplagi.

Þessi dásemdar KitchenAid vél kemur í sérstakri afmælisútgáfu á næsta …
Þessi dásemdar KitchenAid vél kemur í sérstakri afmælisútgáfu á næsta ári. mbl.is/KitchenAid
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert