Yfirliðsvaldandi föstudagspítsa sem engan svíkur

mbl.is/Gott í matinn

Pítsur standa alltaf fyrir sínu en hér gefur að líta hágæða gourmet-ostapítsu sem er svona líka gjörsamlega löðrandi í osti. Betra verður það vart.

Pizzadeig:

  • 2½ dl volgt vatn
  • 2 tsk. þurrger
  • 2 tsk. hunang
  • 2 msk. ólífuolía
  • 400 g hveiti (400-450 g)

Álegg:

  • 2 msk. hvítlauksolía (2-3 msk.)
  • Rifinn mozzarella frá Gott í matinn
  • Rifinn parmesan
  • 1 stk. Dala-camembert
  • ½ stk. Piparostur
Aðferð:

Hægt er gera þessa uppskrift frá grunni eða vera með tilbúið deig.

Pizzadeig:

Leysið gerið upp í volgu vatni og það er afar mikilvægt að vatnið sé volgt.

Bætið hunangi saman við og hrærið vel í. Þegar byrjar að freyða í skálinni er gerið klárt.

Blandið olíu og hveitinu saman við í hrærivélarskál og notið hnoðarann í hrærivélnni í u.þ.b. 4-6 mínútur.

Deigið er tilbúið þegar það er orðið að kúlu og klístrast ekki við hrærivélarskálina.

Setjið viskastykki yfir skálina og leyfið deiginu að hefa sig í klukkustund.

Fletjið út pizzadeigið og leggið á pappírsklædda ofnplötu.

Smyrjið botninn með hvítlauksolíu og dreifið rifna mozzarella-ostinum yfir.

Bætið við skornum camembert og rifnum piparosti.

Bakið við 220°C í 10–12 mínútur. Berið fram með góðri sultu.

Höfundur: Eva Laufey Hermannsdóttir

mbl.is/Gott í matinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert