Nú þegar ketó æðið er að ná hámarki er ekki úr vegi að henda í eina ketó pítsu til að fagna því að það er kominn föstudagur!
Ketó pizza með ostabotni
Botn:
200 g rifinn Óðals cheddar-ostur
Álegg:
- 500 g nautahakk
- Krydd (chiliduft, paprikukrydd, salt, pipar, hvítlauksduft)
- Iceberg
- Rifinn Óðals cheddar-ostur
- Sýrður rjómi frá Gott í matinn
- Guacamole
- Salsasósa
- Ferskt kóríander
<strong>Aðferð:</strong>
- Einföld uppskrift dugar fyrir sex pizzubotna.
- Hitið ofninn í 220°C
- Skerið niður grænmeti, rífið ost og hafið guacamole, salsasósu og kóríander tilbúið.
- Skiptið rifna ostinum (200 g) niður í 6 hluta og mótið hringlaga „pizzabotn“ úr hverjum skammti.
- Bakið í 10 mínútur og leyfið að kólna/storkna á meðan annað er útbúið.
- Brúnið nautahakkið og kryddið.
- Hellið 50 ml af vatni saman við og leyfið að malla í 5-10 mínútur og setjið þá til hliðar.
- Setjið pizzuna saman: Salsa ofan á ostabotninn, því næst hakk, síðan kál, rifinn ost, sýrðan rjóma, guacamole og kóríander.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir