Fiskrétturinn sem þykir sá allra besti

mbl.is/María Gomez

Fiskréttir eru oft nokkuð kúnstugir og oftar en ekki skortir okkur hugmyndaflugið til að detta eitthvað snjallt í hug. Þessi réttur kemur því eins og kallaður því hann er bæði auðveldur og svo fáránlega bragðgóður, svo góður reyndar að höfundur hans, María Gomez á Paz.is, segir að hún sé ábyggilega búin að gera hann fleiri hundruð sinnum. 

Ef það það eru ekki meðmæli þá vitum við ekki hvað...

EXÓTÍSKUR FISKRÉTTUR SEM SLÆR Í GEGN

  • 1 glas af grófum grjónum á móti 2 dl af vatni (ATH þurfa 30-45 mínútna suðu)
  • Salt, sítrónusafi og þurrkuð steinselja til að krydda grjónin
  • 800-1000 gr. ýsa eða þorskhnakkar (mér finnst ýsa betri)
  • 1 lítil dós ananas
  • 1/2 gul eða appelsínugul paprika
  • 15 gr. kókósflögur eða kókósmjöl
  • 1 stór dós kotasæla
  • 1 dós sýrður rjómi með graslauk (þessi í grænu dollunum)
  • Smá búnt af ferskum graslauk
  • 2 msk. hunang
  • 3 msk. sætt sinnep
  • Rifinn ostur
  • Oggupons paprikuduft
  • salt og pipar

Aðferð

  1. Byrjið á að sjóða grjónin og saltið, setjið sítrónusafa og þurrkaða steinselju út á eftir smekk
  2. Kíkið svo á myndina hér fyrir ofan til að skoða með leiðbeiningunum.
  3. Þegar grjónin eru soðin setjið þau þá í botninn á eldföstu móti.
  4. Raðið svo ýsubitunum yfir og saltið og piprið.
  5. Skerið svo ananas og papriku í litla bita og dreifið yfir ýsuna ásamt kókósflögunum.
  6. Smyrjið svo næst kotasælunni yfir allt saman.
  7. Næst er svo að gera sinnepssósuna með sýrða rjómanum, hunanginu og sæta sinnepinu.
  8. Klippið svo smá ferskan graslauk út í ef þið viljið og hrærið sósunni vel saman.
  9. Hellið svo sinnepssósunni yfir kotasæluna og dreifið rifna ostinum yfir allt heila klabbið. Getið sett ferskan mozarella með líka sem er mjög gott.
  10. Gott er svo að setja oggupons af paprikudufti yfir ostinn.
  11. Hitið svo réttinn í ofni við 200 C blástur í 35 mínútur.
  12. Gott er að láta réttinn standa og blása aðeins úr sér í 10 mínútur áður en hans er neytt.
mbl.is/María Gomez
mbl.is/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert