Kjúklinga- og beikonpasta með rjómasósu

mbl.is/Tinna Alavis

Hér gefur að líta skothelda uppskrift sem ætti að falla í kramið á flestum heimilum. Hún er jafnframt frábær daginn eftir sem er algjör bónus - þá ekki síst ef maður er svo heppinn að eiga afgang. 

Það er engin önnur en Tinna Alavis sem á heiðurinn að þessari uppskrift.

Kjúklinga- og beikonpasta með rjómasósu

  • kjúklingabringur
  • beikon
  • penne pasta
  • 1 pakki sveppir
  • rauð paprika
  • 2 laukar
  • graslaukur
  • 1 peli rjómi
  • rúmlega hálfur parmesanostur
  • mozzarellaostur
  • piparostur

Aðferð:

  1. Byrjið á því að steikja sveppi, lauk og papriku á lítilli pönnu (setjið til hliðar).
  2. Steikið beikonið þangað til það er orðið stökkt (setjið til hliðar).
  3. Steikið því næst kjúklingabringurnar (kryddið með salti + pipar) og sjóðið penne pastað á sama tíma.
  4. Takið fram pott og hellið rjómanum út í.
  5. Bræðið piparostinn og parmesanostinn á vægum hita.
  6. Þegar pastað er soðið hellið vatninu af og bætið því saman við rjómaostablönduna ásamt kjúklingnum (sem búið er að skera í passlega stóra bita).
  7. Steikta grænmetið fer svo saman við í lokin.
  8. Smakkið til með svörtum pipar.
  9. Berið réttinn fram með smátt skornum graslauk og mozzarella osti.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

mbl.is/Tinna Alavis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert