Súkkulaðidraumur með kremi og saltkaramellu

Þessi súkkulaðibomba mun trylla mannskapinn.
Þessi súkkulaðibomba mun trylla mannskapinn. mbl.is/Spisbedre.dk

Súkkulaðikökur finnast í óteljandi stærðum og gerðum og þessi hér er alls engin undantekning. Súkkulaðikaka er örugglega eina kakan sem allir í fjölskyldunni eru sammála um að baka – og hér er á ferðinni ein sannkölluð fjölskylduklassík.

Við mælum með að ná mynd þegar saltkaramellan lekur niður kökuna - og lætur því næst saltflögum rigna yfir kremið. 

Súkkulaðidraumur með kremi og saltkaramellu

Botn:

  • 200 g mjúkt smjör
  • 200 g sykur
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 80 g hveiti
  • 3 msk. kakó
  • 100 g dökkt súkkulaði
  • 3 egg
  • 1 tsk. maldon salt

Súkkulaðikrem:

  • 75 g mjúkt smjör
  • 225 g flórsykur
  • 125 g mascarpone
  • 150 g mjólkursúkkulaði
  • 100 g valhnetukjarnar

Saltkaramella:

  • 1 dós niðursoðin mjólk
  • 1 dl ljós muscovado sykur
  • 50 g smjör
  • 1 dl rjómi
  • 1 tsk maldon salt

Annað:

  • Maldon salt til að skreyta.
  • Kökuform 20 cm.

Aðferð:

Botn:

  1. Hrærið smjör og sykur saman í jafnan massa. Sigtið lyftiduft, hveiti og kakó út í og hrærið vel saman.
  2. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hellið út í hveitiblönduna. Pískið eggin út í, eitt í einu og því næst kemur maldon saltið.
  3. Hellið deiginu í smurt bökunarmót og bakið kökunaa við 175°C í 45-50 mínútur, þar til bökuð í gegn. Kælið og skerið þá til helminga í tvo botna.

Súkkulaðikrem:

  1. Pískið smjör og flórsykur saman og hrærið mascarpone ostinum út í. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og hrærið því út í smjörkremið. Smyrjið annan botninn með kreminu og leggið því næst hinn botninn ofan á.
  2. Hakkið hneturnar gróflega og ristið á þurri pönnu. Stráið yfir kökuna og látið kökuna standa í kæli í 1 tíma.

Saltkaramella:

  1. Setjið öll hráefnin í pott og látið malla í 15 mínútur, hrærið í með jöfnu millibili þar til karamellan þykknar. Kælið og hellið yfir kökuna. Dreyfið maldon salti yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert