Sumarsalat á franska vísu með hleyptum eggjum

Þetta salat er með því fallegra sem við höfum séð.
Þetta salat er með því fallegra sem við höfum séð. mbl.is/Winnie Methmann

Við myndum borða þetta salat bara út af því það er svo litríkt og fallegt. En þar fyrir utan er það alveg svakalega gott.

Hér er uppskrift að salati á franska vísu sem er tilvalið í kvöldmat þegar þig langar í eitthvað einfalt og gott en samt mettandi. Það eru brauðtengingar í uppskriftinni en þá má auðveldlega búa til með því að skera niður dagsgamalt brauð, velta því upp úr ólífuolíu og salti og rista inn í ofni.

Sumarsalat á franska vísu með hleyptum eggjum

  • 600 g litlar kartöflur
  • 300 g grænar baunir
  • 1 búnt grænn aspas
  • 150 g beikon skífur
  • 125 g blandað salat
  • 1 rauðlauk
  • 1 msk. kapers
  • 280 g ólífur
  • 50 g brauðteningar

Dressing:

  • Handfylli ferskt dill
  • Handfylli steinselja
  • ½ búnt púrrlaukur
  • 3 msk ólífuolía
  • 1 tsk. hunang
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 2 msk. sítrónusafi
  • Salt og pipar

Hleypt egg:

  • 1 l vatn
  • 3 msk. edik
  • 4 egg

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar í léttsöltuðu vatni og kælið svo. Skolið baunirnar og aspasinn og brjótið endann af aspasinum. Sjóðið baunirnar og aspasinn í örlitla stund til að mýkja og skolið svo undir ísköldu vatni.
  2. Steikið beikonið þar til það er stökkt og leyfið fitunni að leka af á eldhúspappír. Setjið salatið á fat eða disk og skerið rauðlaukinn í þunnar skífur. Skerið kartöflurnar niður og dreyfið yfir salatið ásamt rauðlauknum, kapers, ólífum, brauðteningum og beikoninu.

Dressing:

  1. Skolið dill, steinselju og púrrlaukinn og saxið smátt. Blandið saman við ólífuolíu, hunang, sinnep og sítrónusafa. Smakkið til með salti og pipar. Dreypið dressingunni yfir salatið.

Hleypt egg:

  1. Sjóðið vatn í potti. Bætið ediki út í og lækkið undir hitanum þannig að vatnið haldist rétt undir suðupunkti. Sláið 1 egg í bolla. Notaðu pískara til að hræra í vatninu og búa til „hvirfil“ í miðju pottsins. Hellið egginu varlega út í hvirfilinn og látið vatnið snúa egginu þannig að hvítan safnist utan um rauðuna. Ýtíð því næst egginu til hliðar í pottinum og gefið því 2-3 mínútur þar til hvítan er orðin föst og rauðan ennþá mjúk. Takið upp úr pottinum og endurtakið ferlið fyrir hin eggin. Dreyfið eggjunum yfir salatið og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert