Einfaldasta kjúklingauppskrift í heimi

mbl.is/Linda Ben

„Þessi uppskrift er algjörlega með þeim einfaldari. Svo einföld er hún að það er varla hægt að kalla hana almennilega uppskrift, en það er akkurat það sem ég elska við hana! Þessi réttur er fullkominn til að smella í í útilegu eða í sumarbústaðnum þar sem erfitt er að taka með sér fjöldann allan af kryddum og öðrum innihaldsefnum, en bragðið lætur ekki á sér standa,“ segir Linda Ben um þennan kjúkling sem hún grillaði um helgina og var í skýjunum með.

„Að sjálfsögðu er hægt að bera þessar marineruðu kjúklingabringur  fram með hvaða meðlæti sem er, en þetta er bara svo ótrúlega gott og ferskt, passar fullkomlega með bragðmiklu Hickory honey-marineringunni. Marineruðu kjúklingabringurnar frá Ali er ný vara frá þeim og er algjör snilld! Bringurnar koma í tveimur mismunandi marineringum, þrjár í pakka, eru einstaklega mjúkar og bragðmiklar. Ég mæli heilshugar með þeim.“

Einfaldar grillaðar kjúklingabringur með avocadó- og jarðarberjasalati

  • Hickory Honey marineraðar kjúklingabringur frá Ali
  • Avocadó
  • Jarðarber
  • Feta ostur
  • Graskersfræ

Aðferð:

  1. Kveikið á grillinu og setjið bringurnar á grillið þegar það er orðið heitt. Snúið bringunum reglulega og grillið þar til þær eru eldaðar í gegn (tími fer eftir hitanum á grillinu)
  2. Skerið avocadóið í sneiðar og jarðarberin í ferninga, raðið á diskinn ásamt fetaosti og graskersfræjum.
  3. Mjög gott að bera fram með sætum kartöflum og kaldri piparsósu.
mbl.is/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert