Grillaður kjúklingur með sataysósu

mbl.is/EatRVK

Hún Linda á EatRVK galdrar hér fram ómótstæðilegan rétt sem engan svíkur. Hér er á ferðinni heimagerð satay sósa sem þið eiginlega verðið að prófa. 

Grillaður kjúklingur með sataysósu

  • 600 – 800 gr kjúklingalundir
  • 4 msk ólífuolía
  • 1 lífræn sítróna, rífið börkinn af og notið hann
  • 1 – 2 hvítlauksgeiri, pressaður
  • salt og pipar eftir smekk

Blandið öllu saman í skál og veltið lundunum upp úr blöndunni. Setjið lok yfir og geymið í kæli í 2 tíma. Gott er að setja grillpinna í bleyti áður en kjúllinn er þræddur upp á, þá brenna þeir síður. Þræðið lundirnar á spjót og grillið á vel heitu grilli í 2-3 mínútur á hvorri hlið eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. 

Sataysósa

  • 400 ml kókosmjólk
  • 1 rautt chili, saxað smátt
  • 1/2 krukka gróft hnetusmjör
  • 5 msk sojasósa
  • 1 1/2 msk rifin engiferrót
  • 2 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 1 – 2 msk hunang 
  • safi úr 1 lime
  • Kóríander, eftir smekk til skrauts
  • Salthnetur saxaðar (til skrauts)
  • Lime bátar til að kreista yfir

Setjið allt í pott og hrærið vel í meðan, látið malla í nokkrar mínútur við vægan hita svo hún brenni ekki við.Gott er að smakka á sósunni og bæta við salt og pipar, chili eða chili kryddi ef þess þarf. Ef þið viljið hafa sósuna þynnri er gott að setja meira af kókosmjólk. Berið sósuna heita fram, ásamt kjúklingaspjótum, söxuðu kóríander, lime bátum og söxuðum salthnetum. Gott er að bera þennan rétt fram með salati og hrísgrjónum. 

mbl.is/EatRVK
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert