Þormar Þorbergsson, bakarameistari og súkkulaðiséní, birti myndband þar sem hann kennir fólki hvernig gera á Ris a la mande eftir kúnstarinnar reglum. Eflaust rekur marga í rogastans þegar þeir sjá myndbandið og í leiðinni öll litlu mistökin sem maður hefur gert í gegnum tíðina.
En batnandi fólki er best að lifa og hér eftir er engin leið að klúðra þessum annars stórkostlega eftirrétti sem verður á velflestum veisluborðum á morgun.