Bollur með creme brulée-rjóma og karamellu

Ljósmynd/Thelma Þorbergs

Þessi dásemdarbolla er búin til af henni Thelmu Þorbergs og eins og venjulega slær hún ekki feilnótu. Hér er skyri blandað saman við rjómann og við hvetjum ykkur til að prófa því það kemur hrikalega vel út.

Bollur með creme brulée-rjóma og karamellu

14 skammtar

Vatnsdeigsbollur:

  • 240 ml vatn
  • 115 g smjör
  • 1 msk. sykur
  • 1⁄2 tsk. salt
  • 120 g hveiti
  • 4 stk. egg

Rjómafylling:

  • 500 ml rjómi
  • 350 g Ísey skyr creme brulée
  • 2 msk. flórsykur
  • 1 tsk. kanill
  • 1 tsk. vanilludropar
  • kanilsykur

Toppur:

  • karamellusósa
  • flórsykur

Vatnsdeigsbollur

  1. Setjið vatn í pott yfir meðalháum hita og látið suðu koma upp.
  2. Setjið smjör, sykur og salt saman við og hrærið þar til smjörið hefur náð að bráðna saman við vatnið.
  3. Setjið hveitið saman við og hrærið stanslaust þar til deigið er orðið þykkt og sleppir hliðum pottsins.
  4. Slökkvið undir pottinum, bætið einu eggi saman við í einu og hrærið vel á milli.
  5. Setjið deigið í sprautupoka með þeim stút sem þið viljið. T.d. 1M, rósastút eða klippið 1 cm gat fremst á sprautupoka.
  6. Setjið smjörpappír á bökunarplötu og sprautið deiginu í litla jafna hringi. Hver hringur þarf ekki mikið deig þar sem deigið lyftir sér vel í ofninum.
  7. Bakið við 200 gráðu hita í 10 mínútur, lækkið þá hitann niður í 170 gráður og bakið í 15 mínútur.
  8. Látið hringina kólna áður en þið skerið þá í sundur og setjið á þær.

Rjómafylling

  1. Þeytið rjómann þar til hann stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið.
  2. Blandið skyrinu saman við ásamt kanil, vanilludropum og flórsykri og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  3. Setjið rjómablönduna í sprautupoka og sprautið fallega á hverja bollu fyrir sig, eða setjið 2 msk. á hverja bollu.
  4. Stráið kanilsykri yfir rjómablönduna og lokið bollunni.
  5. Stráið flórsykri yfir hverja bollu fyrir sig.
  6. Setjið tilbúna karamellusósu ofan á hverja bollu fyrir sig.
  7. Geymið bollurnar inni í ísskáp þar til þær eru bornar fram.

Uppskrift: Thelma Þorbergs

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert