Fiskrétturinn sem fékk fimm stjörnur

Ljósmynd/Helena Gunnars

Það er hin eina sanna Helena Gunnars hjá Eldhúsperlum Helenu sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem er heimsklassa lúxús uppskrift samkvæmt okkar bókum.

Lúxusfiskur með eplum, mangó chutney og rjómaosti

(fyrir 3-4)

  • 600 gr ýsa, þorskur eða annar hvítur fiskur skorinn í bita
  • 2 dl rækjur (má sleppa)
  • 2 gulrætur
  • 1 púrrulaukur
  • 1 rauð og 1 græn paprika
  • 1 grænt epli
  • 2 msk. smjör
  • 2 tsk. gott karríduft
  • 200 gr hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
  • 1 dós 18% sýrður rjómi
  • 1 dl mangóchutney
  • Rifinn bragðmikill ostur, t.d. Óðalsostur
  • Paprikuduft, salt og pipar

Aðferð:

Skerið fiskinn í passlega bita og kryddið með salti og pipar, leggið til hliðar. Saxið grænmetið og eplið í frekar smáa bita. Hitið pönnu á meðalhita og bræðið smjörið. Steikið grænmetið í smjörinu þar til það mýkist aðeins (geymið eplabitana). Bætið karríduftinu saman við og steikið það með í 1-2 mínútur. Bætið rjómaostinum, sýrða rjómanum og mangó chutney út á pönnuna og bræðið þetta saman. (Þynnið með örlitlu vatni ef ykkur finnst þetta of þykkt, en athugið að það kemur líka vökvi úr fiskinum þegar hann eldast.)

Dreifið eplunum og rækjunum yfir og hrærið saman. Smakkið til með salti og pipar. Leggið svo fiskinn ofan á sósuna og grænmetið og leyfið þessu að malla þar til fiskurinn er nánast eldaður í í gegn. Stráið þá osti yfir ásamt smá paprikudufti og stingið inn í ofn undir grill í 5 mínútur eða þar til osturinn er gullinnbrúnn. Stráið yfir saxaðri steinselju og berið fram með góðu salati og brauði eða hrísgrjónum.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

Ljósmynd/Helena Gunnars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert