Gera allt til að mæta eftirspurninni

Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus.
Silja Mist Sigurkarlsdóttir, markaðsstjóri Nóa Síríus. Kristinn Magnússon

Kórónuveiran hefur snúið flestum hliðum daglegs lífs okkar á hvolf og fátt sem kemur orðið á óvart í þeim efnum. En það síðasta sem við áttum líklega von á var að hinum árvissu sælustundum okkar á aðventunni með konfektinu frá Nóa-Síríusi væri teflt í tvísýnu. Vegna fjöldatakmarkana í framleiðslusalnum eru blikur á lofti hvað framboðið varðar en ekki er þó öll nótt úti enn.

Að sögn Silju Mistar, markaðsstjóra Nóa-Síríusar, er unnið hörðum höndum að því að tryggja að allir fái sitt konfekt. „Nóa-konfektið skipar stóran sess í jólahaldinu hjá mörgum og við berum ómælda virðingu fyrir því. Eins og staðan er núna er allt kapp lagt á að framleiða eins mikið og hægt er innan þeirra reglna sem gilda. Það sem gerir okkur erfitt fyrir er að allt konfektið okkar er handgert og þar sem venjulega eru rúmlega 30 manns á framleiðslulínunni eru einungis tíu núna,“ segir Silja Mist. Allt kapp sé þó lagt á að framleiða konfektið. „Það er einungis leyfi fyrir tíu manns í framleiðslusalnum sjálfum og því höfum við leitað allra leiða til að nýta annað rými til að geta haldið framleiðslugetunni að einhverju leyti.“

Einstakur starfsandi hjá Nóa

Ástandið í kjölfar Covid-19 hefur haft í för með sér verulega krefjandi áskoranir fyrir starfsfólk Nóa-Síríusar en Silja segir að það sem standi upp úr sé án efa samstaðan meðal starfsfólks og hvað allir eru tilbúnir að gera allt til að láta hlutina ganga. „Venjulega erum við hætt að framleiða jólavörurnar viku fyrir jól en nú er ljóst að við verðum að framleiða alveg fram á aðfangadag til að tryggja að allir fái sitt konfekt. Og það eru allir til í það! Eftirspurnin er til staðar og við gerum allt sem við getum til að mæta henni,“ segir Silja Mist en Nói-Síríus fagnar 100 ára afmæli sínu í ár og er því eitt elsta fyrirtæki landsins. „En þessi andi meðal starfsfólksins kemur mér ekkert á óvart. Hér er gott að vinna og starfsmannaveltan afar lítil. Dæmi eru um fólk sem hefur unnið hér áratugum saman og það er það sem gerir Nóa-Síríus að því fyrirtæki sem það er. Hér ríkir fjölskylduandi og það skilar sér – ekki síst þegar virkilega þarf á að halda,“ segir Silja.

Nýju molarnir vekja lukku

Fyrirtækið tilkynnti fyrr á árinu að fjórir nýir molar væru væntanlegir í sjálft Nóa-konfektið og vakti það mikla athygli enda konfektið rótgróin eftirlætisvara með áratuga hefð. „Nýju molarnir hafa fengið frábærar viðtökur enda skemmtileg viðbót við konfektkassana. Það er saga á bak við molana og þróun þeirra og mér finnst það gæða vöruna enn meira lífi.“ Aðspurð segir Silja að pressan eftir nægu konfekti fyrir jólin sé síst minni nú þegar eftirvæntingin vegna nýju molanna bætist við. „Nei, áhuginn er meiri en nokkru sinni. Þess vegna ætlum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hafa nóg á boðstólum fyrir alla í aðdraganda jóla.“

Höldum sterkt í hefðirnar

Framleiðsla Nóa-Síríusar er talsvert viðamikil og jólavenjur þjóðarinnar tengjast fjölmörgum vörum frá fyrirtækinu sem seljast fyrir bragðið í auknum mæli í aðdraganda jóla.

„Það er að sjálfsögðu konfektið, enda ómissandi um hátíðarnar. Sama er að segja um bökunarvörurnar og allt í baksturinn eins og suðusúkkulaðið, ásamt nýjum hátíðarvörum hvers árs,“ útskýrir Silja. „Nýju bökunarvörurnar í ár eru trompkurl og súkkulaðihúðaðar krispkúlur.“

En hefur smekkur landsmanna breyst? „Við höldum sterkt í hefðirnar og konfektið er fastur liður á jólunum hjá fólki, ekki síst sá fallegi siður að gefa Nóa-konfektið í jólagjöf. Fólk fær sér heitt súkkulaði úr suðusúkkulaðinu okkar um hátíðarnar, en á sama tíma tekur landinn öllum nýjungum svakalega vel. Sem dæmi nefni ég nýju konfektmolana fjóra, nýjungar frá okkur hafa aldrei fengið aðrar eins viðtökur og fólk bara getur ekki beðið eftir að smakka.“

Jólakonfektkassinn frá Nóa Síríus.
Jólakonfektkassinn frá Nóa Síríus.
Nýju molarnir hafa fengið frábærar viðtökur enda algjört sælgæti.
Nýju molarnir hafa fengið frábærar viðtökur enda algjört sælgæti.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert