Það er fátt sem toppar klassíska kornflex-toppa! Mögulega ein vinsælasta smákökutegundin – og klárlega ein sú mest grennandi.
Marengstoppar með kornflexi og súkkulaðibitum
- 2 eggjahvítur
- 100 g flórsykur
- 50 g suðusúkkulaði, til skreytingar
- 1 tsk. vanilluduft
- 35 g kornflex, mulið
- 50 g suðusúkkulaði, smátt saxað
Aðferð:
- Þeytið eggjahvíturnar og passið að hrærivélarskálin sé hrein og þurr. Bætið flórsykri saman smátt og smátt og hrærið áfram. Þegar allur flórsykurinn er kominn út í hrærið í 3 mínútur til viðbótar.
- Setjið vanillu, mulið kornflex og saxað súkkulaðið varlega saman við með sleif.
- Setjið með teskeið á smjörpappír.
- Bakið í 150°C heitum ofni í 15-20 mínútur.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og látið yfir kökurnar.
- Njótið!
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir