Einföld kókosbollu-marengsbomba

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Fyrir þá sem langar að baka um helgina er þessi uppskrift algjörlega málið enda fátt sem toppar kókosbollur á marengs.

Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn af þessari snilld en uppskriftin er komin frá pabba hennar.

„Það er alltaf hægt að baka marengs með góðum fyrirvara svo ef það er helgi eða veisla fram undan má vel gera marengsinn nokkrum dögum fyrr og geyma bara í köldum ofninum. Þá er svo lítið mál að þeyta rjóma og raða ofan á hann deginum áður. Ef tíminn er naumur má hann bara kólna aðeins niður með ofninum og svo taka hann út og leyfa honum að kólna alveg áður en rjóminn er settur ofan á,“ segir Berglind.

Einföld marengsbomba

Marengs og toppar – uppskrift

  • 5 eggjahvítur
  • 350 g púðursykur
  1. Hitið ofninn í 140°C.
  2. Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til topparnir halda sér vel.
  3. Teiknið um 25 cm hring í þvermál á bökunarpappír og útbúið vænan marengsbotn (út um ¾ af blöndunni) og sprautið marengstoppa á aðra bökunarplötu úr restinni.
  4. Bakið toppana í 40 mínútur og takið þá út úr ofninum en bakið marengsinn áfram í 20 mínútur til viðbótar eða samtals í eina klukkustund. Leyfið honum að kólna niður með ofninum.

Fylling og skraut

  • 500 ml þeyttur rjómi
  • litlar kókosbollur
  • snjóboltar frá Kólus, í öllum litum
  • hindber og rifsber
  • marengstoppar
  1. Smyrjið rjómanum yfir marengsbotninn.
  2. Raðið öðrum hráefnum að vild ofan á rjómann!
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert