Dýrðlegar hreindýrabollur með geggjaðri villisveppaostasósu

Ljósmynd/María Gomez

Þessar geggjuðu bollur eru úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is sem fullyrðir að þær séu algjör snilld.

„Bollurnar og sósan er afar bragðmikið og borið fram með sætri kartöflumús og rifsberjahlaupi var alveg til að toppa máltíðina,“ segir María um bollurnar.

Dýrðlegar hreindýrabollur með geggjaðri villisveppaostasósu

Hreindýrabollur 

  • 500-600 g hreindýrahakk 
  • 100 g kartöfluflögur með salti (ég notaði Lays en má nota frá hvaða merki sem er Pringles, Maarud eða annað)
  • 2 msk. villikraftur í duftformi (ég notaði Vildt Bouillon frá Oscar sem fæst í Bónus og víða en má nota hvaða merki sem er)
  • 100 g piparostur rifinn (þessi sem fæst rifinn í boxi) 
  • 1 tsk. villijurtir (ég notaði frá Pottagöldrum)

Villisveppaostasósa 

  • 1 stk. kryddostur villisveppa
  • 2 dl vatn 
  • 2,5 dl matreiðslurjómi 
  • 1 tsk. þurrkað timían 
  • 1 stk. sveppasoðteningur 
  • 1 msk. rifsberjahlaup
  • 3 msk. maizena-sósujafnari (ég notaði fyrir brúnar sósur) 

Aðferð

Hreindýrabollur 

  1. Byrjið á að setja snakkið/kartöfluflögurnar í poka og mylja það smátt með því að lemja á pokann með kökukefli eða potti eða setjið í blandara á pulse þar til það verður að fínni mylsnu (ég setti í blandarann)
  2. Setjið næst hakkið í stóra skál og stráið öllum innihaldsefnum jafnt yfir hakkið
  3. Hnoðið svo allt saman þar til það er orðið vel blandað saman en passið að hnoða ekki allt of mikið svo bollurnar verði ekki seigar
  4. Hitið ofninn á 185°C blástur eða 195°C undir- og yfirhita 
  5. Mótið nú bollur úr hakkinu á stærð við sænskar kjötbollur eins og fást í Ikea og raðið í eldfast mót sem er búið að spreyja með cooking-spreyi eða smyrja að innan 
  6. Stingið bollunum í ofninn í 25 mínútur og látið alveg vera á meðan, ekkert vera að snúa þeim né neitt 
  7. Gerið sósuna á meðan bollurnar eru í ofninum 

Villisveppaostasósa 

  1. Byrjið á að setja vatn í pott og sveppasoðteninginn út í þar til teningurinn er alveg uppleystur í vatninu 
  2. Þið getið rifið niður villisveppaostinn eða skorið hann smátt og sett út í vatnið, þá bráðnar hann mun hraðar
  3. Þegar osturinn er alveg bráðnaður saman við bætið þá matreiðslurjóma, timían og rifsberjahlaupi út í og hrærið vel saman þar til byrjar að sjóða 
  4. Þegar suðan er komin upp setjið þá maizena-sósujafnarann út í og hrærið vel saman þar til sósan hefur þykknað vel
  5. Leyfið sósunni að malla við vægan hita allan tímann sem bollurnar eru í ofninum og hrærið reglulega í henni 
  6. Þegar bollurnar eru tilbúnar takið þær þá úr ofninum og hellið sósunni yfir 
  7. Berið fram með góðri kartöflumús og rifsberjahlaupi 
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert