Fiskrétturinn sem sló í gegn hjá allri fjölskyldunni

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Hér er á ferðinni dásamlegur fiskréttur sem er í senn einfaldur og bragðgóður. Hann sló í gegn hjá allri fjölskyldunni og er sannarlega lúxusútgáfa af hversdagsfiski. Á meðan fatið fer í ofninn er gott að sjóða grjón og leggja á borðið,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þennan dásamlega fiskrétt sem þið eiginlega verðið að prófa.

Fiskur í ofni með rjómasósu

Fyrir 4-6 manns

  • Um 900 g þorskur
  • 1 rauð paprika
  • ½ blaðlaukur
  • 1 x mexíkó kryddostur
  • 500 ml rjómi frá Gott í matinn
  • Rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
  • Salt og pipar
  • Ólífuolía til steikingar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 190°C.
  2. Skerið fiskinn niður og raðið í eldfast mót.
  3. Skerið papriku og blaðlauk niður, steikið upp úr ólífuolíu þar til mýkist, saltið og piprið eftir smekk.
  4. Hellið þá rjómanum yfir grænmetið og rífið mexíkóostinn, hrærið og hitið saman þar til osturinn er bráðinn.
  5. Hellið yfir fiskinn í fatinu og setjið vel af rifnum pizzaosti yfir allt saman.
  6. Eldið í 25 mínútur í ofninum.
  7. Gott er að bera réttinn fram með soðnum hrísgrjónum eða kartöflum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert