Kjúklingavængirnir sem munu breyta lífi þínu

mbl.is/Berglind Guðmunds

Hver elskar ekki kjúklingavængi! Hér erum við með algjörlega geggjaða uppskrift frá Berglindi Guðmunds á GRGS.is sem þið hreinlega verðið að prófa en Berglind segir að gott sé að strá sesamfræum og vorlauk yfir vængina og bera þá fram með kaldri ranch sósu og sellerí.

Klístraðir Buffalóvængir með heimagerðri ranch sósu

  • 2 kg kjúklingavængir
  • 2 msk. lyftiduft (gerir þá stökka)
  • 3/4 tsk. salt
  • 1/2 tsk. svartur pipar
  • 1 tsk. paprika
  • 1 tsk. hvítlauksduft

Buffalósósa:

  • 80 ml hot sauce
  • 200 g púðursykur
  • 2 msk. smjör

Ranch sósa:

  • 1 dl majonnes
  • 1/2 dl sýrður rjómi
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1-2 msk. steinselja, smátt söxuð
  • 1/2 tsk. eplaedik
  • 1/2 tsk. worchestershire sósa
  • salt og pipar

Leiðbeiningar

  1. Þerrið kjúklingavængina mjög vel með pappírsþurrku eða viskustykki. Það er mikilvægt að þá þeim vel þurrum og ágætt að kreysta þá aðeins til að ná vökva úr á meðan þeir eru þerraðir.
  2. Blandið kryddum saman og stráið yfir vængina. Blandið kryddinu vel yfir vængina.
  3. Raðið á plötu með olíubornum álpappír.
  4. Látið í 190°C heitan ofn í 20 mínútur og snúið þá á hina hliðina og bakið í aðrar 20 mínútur.
  5. Gerið sósuna á meðan. Látið hráefnin í pott og hitið þar til sykurinn er alveg bráðinn. Smakkið til. og bætið við hot sauce ef þið viljið fá meira
  6. Takið væninga úr ofninum og setjið í skál. Hellið sósunni yfir og blandið vel saman.
  7. Raðið aftur á ofnplötuna og látið í ofn í 5 mínútur á hvorri hlið í 210°C heitum ofni.
  8. Gerið köldu sósuna með því að blanda öllum hráefnum saman í skál og kæla.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert