„Þessi súpa er í miklu uppáhaldi og er hin fullkomna mánudagssúpa, því að hún er svo frábær kostur þegar maður kemur heim eftir langan vinnudag, nennir ekki að elda en langar samt í eitthvað gott. Súpan er fáránlega auðveld en bragðast eins og súpa á bestu veitingastöðum. Ég mæli með því að gera sér ferð í asískar verslanir og kaupa gott karrýmauk,“ segir Berglind Guðmunds á GRGS.is um þessa æðislegu súpu sem hittir alltaf í mark.
Asísk núðluspúpa með kjúkling og grænu karrí
- 1 msk. olía
- 2 skarlottlaukar, þunnt skornir
- 1 msk. fínrifið engifer
- 2 msk. grænt karrýmauk
- 950 ml kjúklingasoð (eða vatn og 1-2 msk kjúklingakraftur)
- 1 dós kókosmjólk
- 2 msk. fiskisósa (fish sauce)
- 4 tsk. púðursykur
- safi úr 1 límónu (lime)
- 1/2 tsk. turmeric
Annað:
- 100 g þunnar hrísgrjónanúðlur
- 1/2 eldaður kjúklingur, rifinn niður með gaffli
- 1 búnt kóríander, saxað
- 4 vorlaukar, þunnt skornir
- chilísósa
- límóna skorin í báta
Aðferð:
- Hitið olíu í potti við miðlungshita og steikið skarlottlauk og engifer í 2-3 mínútur.
- Bætið grænu karrý saman við og steikið í 1 mínútur.
- Látið kjúklingasoð, kókosmjólk, fiskisósu, púðursykur, límónusafa og turmeric saman við og látið malla í 5 mínútur.
- Sjóðið núðlur samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
- Smakkið súpuna til og bætið við að eigin smekk.
- Látið núðlur og kjúkling í skálar og toppið með kóríander, vorlauk og toppið jafnvel með smá chilísósu (ég notaði rautt chilí).