Lífshættulega góð eplakaka Lindu Ben

Ljósmynd/Linda Ben

Haldið ykkur fast því hér er á ferðinni ein girnilegasta eplakaka sem við höfum augum litið í langan tíma. Við erum að tala um eplaköku með dýrindis karamellukurli og súkkulaðirúsínum. Það er engin önnur en Linda Ben sem á heiðurinn að þessari snilld.

Ljósmynd/Linda Ben

Eplakaka með karamellukurli og súkkulaðirúsínum

  • 180 g hafrar
  • 200 g hveiti
  • 170 g púðursykur
  • ¼ tsk. salt
  • 1 tsk. matarsódi
  • 170 ml bragðlaus olía
  • 2 egg
  • 150 g Síríus sælkerabaksturs karamellukurl
  • 150 g Síríus súkkulaðirúsínur
  • 3 epli
  • Þeyttur rjómi eða vanilluís

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.
  2. Blandið saman höfrum, hveiti, púðursykri, salti og matarsóda.
  3. Bætið út í olíu og eggjum, hrærið saman.
  4. Bætið út í karamellukurli og súkkulaðirúsínum, hrærið saman.
  5. Smyrjið eldfastmót sem er u.þ.b. 25 x 25 cm og smellið u.þ.b. 2/3 af deiginu í formið.
  6. Skerið eplin í sneiðar og setjið í formið, dreifið restinni af deiginu yfir og bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til hún er byrjuð að gyllast á litinn.
  7. Berið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert