Skinkuhornin sem krakkarnir eiga eftir að elska

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Það elska allir skinkuhorn! Hér er ég bæði að prófa mig áfram með deig með hreinu skyri sem kom alveg ótrúlega vel út og svo ákvað ég líka að prófa að setja mexíkóost með skinkumyrjunni og setti ost og chili-pítsukrydd ofan á. Þessi útkoma er dásamleg og skemmtileg tilbreyting frá þeim klassísku!“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þessi skinkuhorn sem eiga eftir að slá í gegn á hverju heimili. Skinkuhorn eru hið fullkomna nesti; bragðgóð, einföld og þægileg.

Sterk skinkuhorn

Skinkuhorn, uppskrift

64 skinkuhorn

  • 1080 g hveiti
  • 2 pk. þurrger (2 x 11,8g)
  • 50 g sykur
  • 2 tsk. salt
  • 4 egg
  • 260 g hreint Ísey skyr
  • 110 g smjör við stofuhita
  • 250 ml volgt vatn

Fylling og toppur

  • 3 pakkar skinkumyrja
  • 2 mexíkókryddostar
  • Rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
  • 1 egg + 3 msk nýmjólk til að pensla með
  • Chili-pítsukrydd (eða annað krydd sem hentar)

Aðferð:

  1. Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið varlega saman með króknum.
  2. Pískið saman egg og skyr og bætið út í ásamt smjöri og volgu vatni.
  3. Hnoðið stutta stund og færið svo yfir á borðið og hnoðið betur.
  4. Penslið stóra skál með matarolíu, setjið deigkúluna þar ofan í og veltið henni um svo hún hjúpist öll olíunni.
  5. Plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í klukkustund (það ætti að tvöfalda stærð sína).
  6. Skiptið þá deiginu í 8 hluta, fletjið hvern um sig út í hring og skerið í 8 sneiðar með pítsuskera.
  7. Setjið kúfaða teskeið af skinkumyrju á hvern hluta ásamt smá mexíkóosti. Rúllið upp, lokið endunum og raðið á bökunarplötur.
  8. Pískið saman egg og mjólk og penslið skinkuhornin. Setjið næst rifinn ost yfir og smá krydd.
  9. Bakið við 190°C í 10-13 mínútur eða þar til hornin fara að gyllast.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert