Brownies með kókosbollum

Ljósmynd/Hanna Þóra

Flest elskum við kókosbollur og reynum að troða þeim í allt sem hægt er. Hér er á ferðinni útgáfa úr smiðju matarbloggarans og keramikdrottningarinnar Hönnu sem við ætlum 100% að prófa um helgina.

Brownies með kókosbollum

Enn og aftur kemur ný útgáfa af brownies enda bæði einfalt og gott að baka til að hafa í eftirrétt eða ef gesti ber að garði. Það er smekksatriði hvort kakan er betri nýbökuð eða eftir að hafa verið sett í kælinn. Ef hún er kæld er auðveldara að skera hana í bita og bjóða upp á hana þannig, með rjóma eða vanilluís.

  • 225 g smjör
  • 240 g suðusúkkulaði
  • 6 egg
  • 3 dl sykur
  • 3 dl hveiti
  • 6 msk. kakó
  • 8 – 10 kókosbollur

Aðferð

  1. Ofninn hitaður í 130°C á blæstri.
  2. Smjör og súkkulaði brætt saman yfir vatnsbaði á lágum hita.
  3. Egg og sykur þeytt þar til hræran verður létt og ljós.
  4. Hveiti og kakó sigtað saman og blandað saman við eggjahræruna með sleikju.
  5. Súkkulaði- og smjörblöndunni hellt saman við deigið – hrært varlega saman með sleikju.
  6. Kókosbollur skornar í bita og settar út í.
  7. Deigið sett í form (35×24 cm) með bökunarpappír í botninum – best er að fylla formið rúmlega til hálfs og baka í 32 – 37 mínútur. Flestir á heimilinu eru sammála um að kakan sé best þegar hún er svolítið blaut þ.e. ekki of mikið bökuð. Ég baka hana yfirleitt í 32 mínútur. Ef formið er minna og hærra þarf að baka hana aðeins lengur.
  8. Kakan er svo látin kólna – þá er auðveldara að skera hana í bita.
  9. Borin fram með rjóma eða vanilluís.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert