Frönsk og frábær

Sigríður Björk Bragadóttir, matgæðingur og matreiðslumeistari, deilir með lesendum uppskrift …
Sigríður Björk Bragadóttir, matgæðingur og matreiðslumeistari, deilir með lesendum uppskrift sinni að lauksúpunni frægu, drottningunni sjálfri. Samsett mynd

Nú styttist óðum í fyrsta vetrardag og þá kólnar iðulega í veðri. Þá er ekkert betra en að ylja sér við ljúffengar og matarmiklar súpur, þar sem bragðlaukarnir fá að njóta sín.

Sigríður Björk Bragadóttir matgæðingur og einn eiganda Salt Eldhús, ávallt kölluð Sirrý, er sérfræðingur í því að galdra fram ljúffengar kræsingar og sérstaklega franskan mat eins og hann gerist bestur. Hún er þekkt fyrir lauksúpuna sína eins og marga aðra góða franska rétti sem hún lagar meistaralega vel. Hún deilir hér með lesendum matarvefsins sinni frægu lauksúpu sem á vel við í vetur og vert er að laga og njóta í góðum félagsskap. Að mati Sirrýjar er þetta drottning allra súpa, sú allra besta. 

Lauksúpan drottningin

„Franska lauksúpan á sér langa sögu. Uppruni hennar er sennilega frá tímum Rómverja. Þeir suðu lauk, sem allir gátu ræktað, og vatn saman og þótti þetta vera mettandi fátækramannamatur. Frakkar þróuðu síðan snemma uppskriftina og bættu brauði og glóðuðum osti ofan á og varð þetta vinsæll matur þar í landi. Súpan komst síðan mjög í tísku í Ameríku um 1960 þegar franska matarmenningin varð vinsæl vestra og hefur Julia Child átt þar stóran þátt. Frakkar nota gjarnan hvítvín í súpuna eða jafnvel Calvados í héruðum þar sem það er búið til. Mér finnst hins vegar gott að setja svolítið púrtvín í súpuna. Þetta er sígild súpa, algjör drottning að mínu mati en eins góð og hráefnið sem fer í hana, eins og allt annað. Gott soð, smá vín, vel af pipar, gott súrdeigsbrauð og góður ostur ofan á eins og t.d. Ísbúi gerir þessa súpu vel hæfa í matarboðið,“ segir Sirrý sem veit fátt skemmtilegra en að elska franska rétti sem gleðja matarhjartað.

Lauksúpan hennar Sirrýjar er ómótstæðilega girnileg og á vel við …
Lauksúpan hennar Sirrýjar er ómótstæðilega girnileg og á vel við á köldu vetrarkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Frönsk lauksúpa

Fyrir 6-8

  • 1 kg laukur (um það bil 4 stórir, má alveg vera rúmt kíló)
  • 3-4 hvítlauksrif, söxuð
  • 80 g smjör
  • 1 grein timian eða ½ tsk. þurrkað
  • Slatti nýmalaður pipar
  • 2 msk. hveiti
  • 1,5 lítri gott nautasoð, má líka nota grænmetissoð
  • 1 dl hvítvín, þurrt púrtvín eða bara það sem ykkur hugnast, má líka sleppa því
  • Sjávarsalt eftir smekk
  • Gott snittubrauð eða Ciabattabrauð
  • Sterkur ostur

Aðferð:

  1. Afhýðið laukinn og skerið hann í tvennt, skerið hvorn helming í tvo hluta og sneiðið hann niður. Þetta er mikið af lauk og mikið táraflóð sem fylgir þessu.
  2. Steikið laukinn og hvítlaukinn í smjörinu í um 15 mínútur eða þar til laukurinn er glær og aðeins farinn að taka lit.
  3. Piprið vel í pottinn og látið piparinn steikjast aðeins með, en mér finnst piparinn njóta sín vel með þessari aðferð.
  4. Bærið timian í.
  5. Stráið hveitinu yfir laukinn og hrærið honum saman við með sleif.
  6. Hellið öllum vökva sem á að fara í súpuna út í, fyrst smávegis og svo öllu til að hveitið hlaupi ekki í kekki.
  7. Sjóðið súpuna í 30 mínútur við meðalhita, smakkið til með pipar og sjávarsalti.
  8. Hitið ofninn á 200°C eða stillið á grill.
  9. Setjið bökunarpappír á ofnplötu.
  10. Skerið brauðið niður í stóra teninga, það er auðveldara að borða súpuna þannig, og setjið í passlegum skömmtum á mann á pappírinn. Stráið vel af rifnum osti yfir.
  11. Bakið eða grillið brauðið þar til það er gullið og girnilegt.
  12. Hellið súpunni í skálar og setjið grillað ostabrauð í hverja súpuskál.
  13. Berið fram strax og njótið.
  14. Huggulegt er að borða þetta við kertaljós.
Sirrý mælir með að skera brauðið í stóra teninga og …
Sirrý mælir með að skera brauðið í stóra teninga og setja í súpuna. Þá verður auðveldara að borða súpuna og njóta hennar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert