Negroni kokteillinn sveipaður töfrum

Þessi frumlegi og fallegi kokteill á eftir að töfra gestina …
Þessi frumlegi og fallegi kokteill á eftir að töfra gestina þína upp úr skónum. Samsett mynd

Þessi uppskrift að hinum fræga negroni kokteil á eftir að töfra gestina upp úr skónum. Hinn bráðflinki barþjónn á Instagram síðunni @the_shadow_bartender sýnir hér fyrir neðan og framreiðir frumlegan og skemmtilegan kokteill sem ber enska heitið „Smoked rosemary negroni sour“. Hér er á ferðinni þægileg uppskrift af óvæntum og ljúffengum kokteil sem steinliggur sem fordrykkur í góðra vina hópi. Uppskrift kemur úr smiðju Julianna McIntosh sem er með Instagram síðuna @join_jules.

Smoked rosemary negroni sour

  • 3 cl af Bobby's Dry Gin
  • 3 cl af Campari
  • 3 cl af sætum vermouth
  • 1,5 cl af rósmarínsírópi
  • 1,5 cl af sítrónusafa
  • skvetta af appelsínusafa
  • 1 eggjahvíta
  • Klakar eftir smekk

Skraut

  • Rósmarín, brennt
  • Þurrkuð appelsínusneið

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í kokteilhristara, í réttri röð eftir hráefnalistanum.
  2. Hristið vel með handbragði barþjónsins.
  3. Hellið í hanastélsglas og skreytið með brenndu rósmarín og þurrkaðri appelsínusneið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert