Fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, kaupir það ekki að konur geti sinnt börnum sínum, hjónabandi og skarað fram úr á vinnustaðnum allt á sama tíma. Obama er ekki aðdáandi aðferðar Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóra Facebook, sem boðaði þessa hugsjón í bók sinni Stígum fram.
Elle greinir frá því að Obama hafi staðhæft þegar hún var að kynna endurminningabók sína í New York að það væri ekki jafnrétti í hjónabandi. Hún segist segja konum að „þú getur fengið allt“-setningin sé lygi. „Nei, ekki á sama tíma - það er lygi,“ sagði forsetafrúin fyrrverandi um hvort konur geti fengið allt.
Obama segist í bókinni hafa átt erfitt með að sætta sig við að það væri ekki fullkomið jafnrétti í hjónabandi. Þá var eiginmaður hennar, Barack Obama, í kosningabaráttu og það lent á henni að sjá um heimilið, dætur þeirra tvær og sinna starfi sínu sem lögfræðingur.