Hvert snjókorn kostar sama og máltíð á kaffistofu Samhjálpar

Vala Magnúsdóttir átti hugmyndina að Snjókorninu en hún er verkefnastjóri …
Vala Magnúsdóttir átti hugmyndina að Snjókorninu en hún er verkefnastjóri í A4.

Verslunin A4 er umhugað um umhverfið og hefur nú látið hanna jólaskraut úr plasti sem fellur til í verslununum. Ágóðinn af sölunni á snjókorninu rennur til Samhjálpar sem styður við fólk sem hefur orðið undir í samfélaginu. 

A4 hefur hafið sölu á Snjókorninu 2023, en söluandvirði rennur allt til Samhjálpar.

„Okkur er mjög annt um Samhjálp sem vinnur mikilvægt starf í þágu þeirra sem glíma við fátækt og þeirra sem eru í neyð,“ segir Sigrún Ásta Einarsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og þróunarsviðs A4.

„Með snjókorninu stuðlum við líka að fullkominni hringrás plastefna og minni sóun, því það er eingöngu unnið úr plasti sem fellur til hjá A4 en frá árinu 2019 hefur Plastplan, sprotafyrirtæki í hönnun og plastendurvinnslu, sótt plast til okkar og skilað því til baka í formi nýrra hluta,“ segir hún. 

Sigrún Ásta segir hugmyndina að Snjókorninu hafa kviknað þegar Plastplan var fengið til að útbúa pakkaskraut til starfsmanna A4 fyrir jólin í fyrra.

„Þetta vakti mikla lukku og margir sögðust hafa hengt skrautið á jólatréð hjá sér. Vala Magnúsdóttir, verkefnastjóri, stakk upp á því að við myndum þróa þessa hugmynd og selja til styrktar góðu málefni.“

Vala segir snjókorn hafa orðið fyrir valinu þar sem ekkert snjókorn sé eins.

„Öll erum við einstök. Svo er það líka táknrænt fyrir skjólstæðinga Samhjálpar sem oft þekkja kuldann of vel. Hugmyndin er að fólk geti safnað Snjókornum og notað þau sem pakkaskraut, til að hengja á jólatré eða á grein eða í glugga eins og óróa.“

Steingerður Steinarsdóttir kynningarstjóri Samhjálpar og ritstjóri Samhjálparblaðsins.
Steingerður Steinarsdóttir kynningarstjóri Samhjálpar og ritstjóri Samhjálparblaðsins. Ljósmynd/Aðsend

Steingerður Steinarsdóttir kynningarstjóri Samhjálpar segir að aðsókn hafi aukist mikið á kaffistofu Samhjálpar. Hún segir að kaffistofan gefi allt að 350 máltíðir á hverjum degi en hvert snjókorn kostar 2.500 krónur sem er andvirði hverrar máltíðar á kaffistofunni. 

„Við erum ákaflega þakklát fyrir þá velvild og hlýju sem A4 sýnir okkur með því að velja að styrkja samtökin með sölu Snjókornsins í ár. Við vonum að sem flestir landsmenn kaupi Snjókornið 2023 og styrki í leiðinni þá sem búa við neyð um hátíðarnar,“ segir Steingerður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál