Hófsemi er lykillinn að mataræði Victoria's Secret-fyrirsætunnar Miröndu Kerr ef marka má það sem Kate McAloon sagði í viðtali við Daily Telegraph. McAloon var kokkur fyrirsætunnar og fyrrverandi eiginmanns hennar, leikarans Orlondo Bloom.
McAloon segir að það sé mikið af reglum þegar kemur að mataræði stjarnanna en hún hefur eldað fyrir stjörnur á borð við Courtney Cox, Steven Spielberg og Gwyneth Paltrow.
„Hún borðar hreina fæðu, hún trúir virkilega á 80/20 mataræðið,“ segir McAloon en í því felst að passa að borða hollt í um það bil 80 prósent tilvika og leyfa sér eitthvað betra eða óhollara stundum.
Hún segir Kerr borða mikið af ávöxtum og grænmeti, laxi og glútenlausu pasta. Hún sé einnig hrifin af karrý og súkkulaði- og kókoskökum.